Jón Ásgeir á hlaupum með Bónuspoka

Enn einu sinni birtist Jón Ásgeir Jóhannesson í fréttum á harðahlaupum undan sjónvarpsmönnum; af hverju stendur maðurinn aldrei kjur á meðan rætt er við hann í sjónvarpi? það myndi óneitanlega koma betur út fyrir hann; það orkar nefnilega illa á áhorfendur að sjá mann flýja myndavél, það er engu líkara en hann hafi eitthvað að fela, eins og hann vilji ekki láta sjá framan í sig, vilji ekki horfast í augu við okkur; maður hefur allt aðra tilfinningu fyrir manni sem stendur keikur frami fyrir myndavélinni, hleypir fréttamanninum að sér og svarar spurningum hans.

Það var þó snilld að mæta með Bónuspoka í dómsalinn. Með honum talaði Jón Ásgeir til þeirra áhorfenda sem hafa líklega mesta samúð með málstað hans, Bónusverslandi almennings sem er jú sennilega meirihluti þjóðarinnar eða hátt í það. Hingað til hefur málið jú ekki síst snúist um almenningsálitið og Bónuspokinn vinnur tvímælalaust samkeppnina um það við svarbláu kuflana sem valdakerfið skartaði í dómsalnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband